Lífið

Ben Affleck og Jennifer Garner eru að skilja útaf Jennifer Lopez

Stefán Árni Pálsson skrifar
Til vinstri má sjá Ben með Garner en til hægri má sjá mynd af kappanum með Jennifer Lopez.
Til vinstri má sjá Ben með Garner en til hægri má sjá mynd af kappanum með Jennifer Lopez. vísir/getty
Erlendir miðlar greina frá því að leikarahjónin Ben Affleck og Jennifer Garner séu að skilja og að ástæðan sé vinátta Affleck við fyrrverandi unnustu sína Jennifer Lopez.

Hjónin tilkynntu um skilnaðinn þann 30. júní, aðeins einum degi eftir þeirra tíu ára brúðkaupsafmæli.

Samkvæmt vinum þeirra mun ein af ástæðunum vera að Affleck hafi alltaf haldið í vináttu við hans fyrrverandi, Jennifer Lopez.

„Þau hafa alltaf verið náin og haldið sambandi í gegnum tölvupóst. Jennifer Garner líkaði aldrei við þeirra samband,“ segir vinur hjónanna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.