Lífið

Malik hættur í One Direction

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Niall Horan. Zayn Malik, Louis Tomlinson, Harry Styles og Liam Payne.
Niall Horan. Zayn Malik, Louis Tomlinson, Harry Styles og Liam Payne. Vísir/getty
Zayn Malik í One Direction hefur sagt skilið við strákabandið. Frá þessu var greint í tilkynningu á facebook og twitter síðu sveitarinnar rétt í þessu.

Malik yfirgaf bandið í síðustu viku vegna heilsufarsástæðna, en einnig voru sögusagnir um að hann hefði haldið framhjá unnustu sinni, Perrie Edwards, með óþekktri stúlkuí Tailandi.

Þeir Harry Styles, Louis Tomlinson, Niall Horan og Liam Payne munu halda áfram á tónleikaferð  One Direction um heiminn, en henni lýkur í október. Þeir óska vini sínum alls hins besta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.