Lífið

Fyrsta myndin af Jesse Eisenberg sem Lex Luthor

Birgir Olgeirsson skrifar
Jesse Eisenberg sem Lex Luthor.
Jesse Eisenberg sem Lex Luthor. Vísir/Entertainment Weekly
Bandaríska tímaritið Entertainment Weekly hefur birt fyrstu myndina af leikaranum Jesse Eisenberg í hlutverki illmennisins Lex Luthor. Margir muna eflaust eftir Eisenberg sem Mark Zuckerberg í myndinni The Social Network en hann skartar þessu útliti á meðan hann leikur erkióvin ofurmennisins í Batman vs. Superman: Dawn of Justice.

Myndin er væntanleg í kvikmyndahús í mars árið 2016 en ásamt Batman og Superman koma fyrir í henni frægar ofurhetjur á borð við Aquaman, Wonder Woman og The Flash. Myndin er undanfari Justice League-myndarinnar þar sem allar helstu ofurhetjur DC-Comics koma við sögu og er svar þeirra við Avengers-seríu Marvel sem hefur notið gífurlegra vinsælda síðastliðin ár og sér ekki fyrir endann á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.