Leikjaframleiðandinn CCP flytur starfsemi sína í Vatnsmýri 18. júní 2015 14:52 Hilmar Veigar Pétursson og Hilmar Bragi Janusson undirrita samkomulagið en vottar voru Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir/Kristinn Ingvarsson
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri alþjóðlega leikjaframleiðandans CCP, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hilmar Bragi Janusson, stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samkomulag um að CCP flytji starfsemi sína á Íslandi í nýbyggingu sem rísa mun á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Viðstaddir undirritunina voru Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Í nýbyggingunni verður einnig gert ráð fyrir rými fyrir önnur nýsköpunarfyrirtæki. CCP, sem er með starfsstöðvar í fjórum löndum, hefur verið með skrifstofur við Grandagarð við Reykjavíkurhöfn. Markmið CCP er að efla starfsemi fyrirtækisins, en með staðsetningu skrifstofa fyrirtækisins í Vísindagörðum Háskóla Íslands munu skapast aukin tækifæri til samstarfs við háskólasamfélagið, stúdenta og fyrirtæki í fremstu röð. CCP hefur á undanförnum áratug stutt ötullega nýsköpun og menntun á Íslandi og vill með því gerast þátttakandi í Vísindagörðum og efla enn frekar þá þætti í starfsemi félagsins. „Með þessum áformum er að hefjast nýr kafli í starfsemi CCP á Íslandi þar sem við sjáum fram á að efla enn frekar farsælt samstarf okkar við háskólasamfélagið og skapandi greinar hérlendis. Fram undan eru spennandi tímar hjá fyrirtækinu og ég er sannfærður um að miklir möguleikar eru fólgnir í þeirri samvinnu og uppbyggingaráformum sem fyrirhuguð er í Vísindagörðunum í Vatnsmýrinni á sviði tækniþróunar, rannsókna og nýsköpunar,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Nýjar skrifstofur CCP verða í nýbyggingu sem áætlað er að reisa við Sturlugötu 6. Í nýbyggingunni verður einnig gert ráð fyrir aðstöðu sem leigð verður út til annarra nýsköpunarfyrirtækja sem falla ekki síður en CCP að stefnu Háskóla Íslands um rannsóknir og nýsköpun og aukin tengsl við íslenskt atvinnulíf. Auk samninga um byggingarframkvæmdir, lóðarleigu og byggingarrétt á lóðinni að Sturlugötu 6 er stefnt að víðtæku samstarfi CCP og Háskóla Íslands sem lúta mun að kennslu, rannsóknum og nýsköpun á því sviði sem CCP starfar á. „Hér á lóð Vísindagarða er að skapast gríðaröflugur kjarni þekkingarfyrirtækja og við fögnum komu CCP og nýrra sprotafyrirtækja í þetta öfluga samfélag. Það hefur víða sýnt sig að nábýli skapandi fyrirtækja, vísindamanna og stúdenta leiði til aukins árangurs í verðmæta- og nýsköpun. Hér verður til suðupottur þekkingar og segull fyrir nýsköpunarstarfsemi. CCP kemur hér inn í umhverfi þar sem fyrir eru Íslensk erfðagreining og lyfjafyrirtækið Alvogen auk glæsilegra stúdentagarða sem vígðir voru 2013. Breiddin í starfsemi Háskóla Íslands, hin mikla fjölbreytni námsgreina og fagsviða, skapar ótal tækifæri til samvinnu um úrlausn verkefna þar sem þekking er sótt til fólks með ólíkan bakgrunn, og unnið er þvert á fræðigreinar. Við fögnum sérstaklega að koma CCP hingað á lóðina skapar grundvöll til að hýsa í sömu byggingu ný sprotafyrirtæki,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Samkvæmt samkomulagi Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar hefur borgin skuldbundið sig til þess að úthluta Háskóla Íslands lóðinni að Sturlugötu 6 og hefur Háskóli Íslands falið Vísindagörðum umsjón með uppbyggingu á lóðinni. „Staðarval CCP og frekari uppbygging Vísindagarða Háskóla Íslands er sérstakt fagnaðarefni. CCP hefur verið eitt af leiðandi þekkingarfyrirtækjum landsins og mikil sóknarfæri sem fylgja því að það sé í návígi við háskólastarfsemi, stúdenta og kennara. Ég er mjög stoltur af því að þetta sé að verða að veruleika og tel að það sé til marks um framsýni og metnað forsvarsmanna fyrirtækisins,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og bætir við. „Það skref sem stigið er í dag er einnig ávöxtur af nánu samstarfi borgarinnar og háskólanna, sem ásamt Landspítalanum hafa sammælst um að gera Vatnsmýrina að framúrskarandi valkosti fyrir fyrirtæki og fjölskyldur. Það þarf enginn að velkjast í vafa um að þekkingartengd starfsemi er lykilatriði í atvinnustefnu borgarinnar og kraftmikil uppbygging vísindaþorps er sannarlega kjarninn í því að hún nái fram að ganga.“
Mest lesið Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Neytendur Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Samstarf Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira