Lífið

Bjuggu til púða svo Kanye gæti kúrt með sjálfum sér

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ein þeirra sem skapaði púðann sést hér kúra með honum.
Ein þeirra sem skapaði púðann sést hér kúra með honum. mynd/brohaus art collective
Á vefsíðunni Kickstarter má finna fjöldan allan af allskonar söfnunum fyrir verkefni sem fólk vill hrinda í framkvæmd. Meðal þeirra sem finna má þar í augnablikinu má nefna Kanye West púða sem framleiðendur langar að gefa tónlistarmanninum.

Púðinn er 183 sentimetrar á lengd með mynd af Kanye. Að sögn framleiðenda púðans er hann svo líkur rapparanum að þegar þeir eru hlið við hlið sé varla möguleiki að sjá hvor sé hvað.

Það er hópur sem kallar sig The Brohaus Art Collective sem stendur að baki gjörningnum og en þeir segja ástæðuna fyrir honum vera augljósa. Kanye West hlýtur að sofa illa á nóttunni fyrst hann getur ekki kúrt með sjálfum sér. Þau vonast til þess að með púðanum sé sá vandi leystur.

Þeir sem láta ákveðna upphæð af hendi rakna geta meðal annars fengið að vera með í för þegar púðanum verður skutlað til Kanye. Ekki er enn vitað hvað rapparanum og eiginkonu hans, Kim Kardashian, þykir um uppátækið.


Tengdar fréttir

Afmæli Kanyes var ótrúlegt

Kim Kardashian gaf eiginmanni sínum, Kanye West, heldur betur gjöf sem kemur til með að gleymast seint.

North eignast bróður

Kim Kardashian West tilkynnti á Instagram-síðu sinni að þau Kanye West ættu von á dreng í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.