Á morgun hefjast undanúrslitin í kvennaflokki en þá hefjast beinar útsendingar á Stöð 2 Sport frá mótinu. Sýnt verður frá mótinu síðustu fjóra keppnisdagana.
Serena Williams tryggði sér í gær sæti í undanúrslitunum mótsins en hún mætir þar sjálfri Mariu Sharapovu. Williams hafði betur gegn Victoriu Azarenku, 3-6, 6-2 og 6-3 fyrir framan fimmtán þúsund áhorfendur á aðalvelli Wimbledon.
Williams er að eltast við að vera handhafi allra fjögurra stóru titilanna samtímis en hún hefur unnið öll stórmótin síðan að Wimbledon-mótið fór fram í fyrra. Williams hefur unnið síðustu sextán viðureignir sínar gegn Sharapovu.

Í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast við Garbina Muguruza frá Spáni (20. sæti heimslistans) og Agnieszka Radwanska frá Póllandi (13. sæti).
Í karlaflokki eru átta keppendur eftir og þeir hafa unnið samtals 30 risamót. Heimamenn binda að sjálfsögðu vonir við að Andy Murray geti leikið eftir afrek sitt frá 2013 er hann varð fyrsti Bretinn í meira en 70 ár til að vinna sigur í einliðaleik karla á mótinu.
Murray mætir í dag lítt þekktum Kanadamanni að nafni Vasek Pospisil en hann er í 56. sæti heimslistans. Pospisil hefur aldrei komist svona langt á risamóti og hefur engu að tapa.
Pospisil er hins vegar einnig að keppa í tvíliðaleik og spilaði tennis í samtals átta klukkustundir á mánudag. „Ef hann sýnir merki þreytu mun ég nýta mér það,“ sagði Murray. „En ég ætla ekki að stóla á það.“
Murray á erfiða leið að titlinum. Sigri hann í dag þarf hann líklega að spila gegn Roger Federer í undanúrslitum og svo Novak Djokovic í úrslitunum - fari allt eftir bókinni frægu.

Djokovic mætir Króatanum Marin Cilic í dag en sá síðarnefndi vann Opna bandaríska meistaramótið á síðasta ári. Djokovic er í efsta sæti heimslistans og hefur unnið tólf leiki í röð gegn Cilic. Hann hefur komist í undanúrslit Wimbledon sjö ár í röð og þrátt fyrir að hafa lent óvænt í basli gegn Kevin Anderson í síðustu umferð þá reikna flestir með sigri Serbans í dag.
Komist Djokovic í undanúrslit mætir hann annað hvort Stan Wawrinka, sem vann Opna franska í ár og Opna ástralska í fyrra, eða Frakkanum Richard Gasquet. Báðir eru með afar öflugt bakhandarskot en Wawrinka virðist í afar góðu formi og ætti að komast áfram í dag.
Undanúrslitin í einliðaleik karla fara fram á föstudag og úrslitaleikirnir eru svo á dagskrá um helgina - konurnar á laugardag og karlarnir á sunnudag.