Lífið

Mun ekki yfirgefa Simpsons

Samúel Karl Ólason skrifar
Harry Shearer ljáir meðal annars Ned Flanders rödd sína.
Harry Shearer ljáir meðal annars Ned Flanders rödd sína.
Harry Shearer hefur samið við framleiðendur Simpsons þáttanna um að starfa í tvö ár við talsetningu í þáttunum. Hann talar fyrir fjölmarga karaktera sem eru þáttunum mikilvægir, en fyrr á árinu var talið að hann myndi hætta eftir ósætti við James L. Brooks, framleiðanda Simpsons.

Meðal þeirra góðkunnugu karaktera sem Harry Shearer talar fyrir eru Ned Flanders, Mr. Burns og Skinner skólastjóri.

Allir leikararnir sem koma að talsetningu þáttanna hafa skrifað undir tveggja ára samning. 27. þáttaröð Simpsons hefst í haust.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.