Lífið

Megan Fox leysir Deschanel af hólmi í New Girl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Megan Fox og Deschanel.
Megan Fox og Deschanel. vísir/getty
Megan Fox, 29 ára leikkona, mun koma inn í vinsælu gamanþættina New Girl, og leysa Zooey Deschanel af hólmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FOX sjónvarpsstöðinni en Megan mun leika karakter sem flytur inn íbúðina í stað Jess, sem leikinn hefur verið af Deschanel.

Framundan er sería fimm í þessari þáttaröð en Zooey Deschanel eignaðist barn í ágúst ásamt eiginmanni sínum Jacob Pechenik. Jess verður því ekki í þáttunum í næstu seríu en mun síðan snúa til baka.

Reagan flytur inn í íbúðina og mun Megan Fox leika hana. Þar mun hún búa ásamt Nick og Schmidt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×