Lífið

Fallon keppti við Cuoco-Sweeting í hvolpa-kvissi

Atli Ísleifsson skrifar
Kaley Cuoco-Sweeting er mikill hundavinur.
Kaley Cuoco-Sweeting er mikill hundavinur.
Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jimmy Fallon keppti við leikkonuna Kaley Cuoco-Sweeting í sérstökum spurningaleik í þætti sínum fyrr í vikunni.

Spyrillinn spurði Fallon og Cuoco-Sweeting hinna ýmsu spurninga um dýr og fólst stigagjöfin í að þau söfnuðu hvolpum. Bar sá sigur út býtum sem stæði að lokum uppi með flesta hvolpa.

Cuoco-Sweeting hefur gert garðinn frægan í þáttunum Big Bang Theory en leikkonan heldur mikið upp á hunda og var himinlifandi þegar hún komst að keppnisreglunum í leiknum.

Sjá má myndband af einvíginu að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×