Lífið

Bíla­sér­fræðingurinn Finnur: Settu kattasand í bílinn

Það getur verið bölvað basl að koma bílnum af stað í vetrarfærðinni.
Það getur verið bölvað basl að koma bílnum af stað í vetrarfærðinni. Vísir
Bílasérfræðingurinn Finnur Orri Thorlacius lumar á nokkrum ónvejulegum trikkum og góðum ráðum fyrir þá sem eru akandi í vetrarfærðinni.

Finnur Orri bílablaðamaður lumar á góðum ráðum.Vísir/Valli
Rúðuþurrkutrikk

Þegar bílnum er lagt er gráupplagt að setja upp rúðuþurrkurnar því talsverðar líkur eru á því að þær sitji fastar að morgni í miklu frosti.

Alkóhóltrikkið

Taktu klút og vættu hann í vökva úr sem mestu alkóhóli og strjúktu nokkrum sinnum eftir þurrkublaðinu. Við það loðir hún ekki við rúðuna þó frjósi.

Aukagrip

Hreinsaðu dekkin með dekkjahreinsi, má gera það með white spirit líka, og fáðu þannig aukagrip í snjónum. Flest dekk eru þakin tjöru og grípa ekki vel í hálkunni og snjónum fyrir vikið.

Raksápa er til margs nýt.Vísir/Getty Images
Kveikjaratrikkið

Ef bíllykillinn kemst ekki í skrána vegna frosts getur þú hitað lykilinn með kveikjara og hitinn frá lyklinum mun á augabragði bræða læsinguna. 

Raksáputrikkið

Til að forðast móðu á innanverðum rúðum má spreyja raksápu á rúðurnar, strjúktu hana af, raksápa inniheldur að miklu leyti sömu efni og eru í móðulosandi spreyi.

Kattasandstrikkið

Settu kattasand í opið ílát á gólfið fyrir aftan aftursætin. Kattasandurinn dregur í sig raka innan úr bílnum og kemur í veg fyrir móðumyndun. Gætið að því að skilja ekki eftir vökva (til dæmis kaffi eða gos) í bílnum yfir nótt. Vatnið gufar upp og sest sem móða á rúðurnar.

Bökunarsprey á bílinn, segir Finnur.Vísir/Getty Images
PAM-trikkið

Til að forðast frosnar hurðir spreyjaðu PAM bökunarspreyi á gúmmílistana og þær sitja ekki fastar í frosti.

Tannkremstrikkið

Ef framljósin eru orðin skítug er gott trikk að þrífa þau með tannkremi. Ljósin eru eitt mikilvægasta öryggistæki bílsins og það er mikilvægt að þau séu sýnileg í umferðinni.

Sandpokatrikkið

Ef bíllinn er afturhjóladrifinn má fá betra grip með því að hafa 20-30 kílóa aukavigt í skottinu, til dæmis er hægt að skella gangstéttarhellum eða sandpoka í skottið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.