Tómas í stuði í fjórða og Þórsarar unnu Tindastól Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2015 21:13 Tómas Heiðar Tómasson. Vísir/Pjetur
Vikan var góð fyrir Benedikt Guðmundsson og lærisveina hans í Þór frá Þorlákshöfn en liðið fylgdi á eftir sigri á ÍR á mánudagskvöldið með því að vinna Tindastól í æsispennandi leik í Þorlákshöfn í kvöld. Þór vann leikinn 97-95. Þrír leikmenn Þórsliðsins skoruðu tuttugu stig eða fleiri í kvöld, Tómas Heiðar Tómasson var stigahæstur með 24 stig og þeir Vincent Sanford og Grétar Ingi Erlendsson skoruðu báðir 20 stig. Darrel Keith Lewis var með 32 stig og 14 fráköst fyrir Tindastól og Helgi Freyr Margeirsson var með 21 stig. Þórsliðið hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki ársins og ætlar ekki að gefa neitt eftir í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Tindastólsliðið var aðeins búið að tapa tveimur leikjum á tímabilinu fyrir leikinn í kvöld en Stólarnir eru áfram í öðru sæti deildarinnar. Þórsliðið var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhlutann, 25-24, en Stólarnir unnu annan leikhlutann 24-19 og voru með fjögurra stiga forskot í hálfleik, 48-44. Leikurinn var æsispennandi í seinni hálfleiknum en staðan var jöfn fyrir lokaleikhlutann, 72-72. Þórsliðið var skrefinu á undan í fjórða leikhluta og tókst að landa sigri ekki síst fyrir frábæra frammistöðu Tómasar Tómassonar sem skoraði 14 af 24 stigum sínum í fjórða leikhlutanum.Þór Þ.-Tindastóll 97-95 (25-24, 19-24, 28-24, 25-23)Þór Þ.: Tómas Heiðar Tómasson 24/6 fráköst/5 stoðsendingar, Grétar Ingi Erlendsson 20/9 fráköst, Vincent Sanford 20/5 fráköst, Emil Karel Einarsson 12/6 fráköst, Oddur Ólafsson 9, Þorsteinn Már Ragnarsson 8, Nemanja Sovic 4.Tindastóll: Darrel Keith Lewis 32/14 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 21, Myron Dempsey 18/6 fráköst, Darrell Flake 8/4 fráköst, Svavar Atli Birgisson 6, Helgi Rafn Viggósson 5/4 fráköst/7 stoðsendingar, Ingvi Rafn Ingvarsson 2, Pétur Rúnar Birgisson 2/5 fráköst, Hannes Ingi Másson 1.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira