Lífið

Lamar sendir frá sér plötu

Guðrún Ansnes skrifar
Platan átti upphaflega að koma út í næstu viku en var gerð aðgengileg á netinu í gær.
Platan átti upphaflega að koma út í næstu viku en var gerð aðgengileg á netinu í gær. VÍSIR/GETTY
Nýjasta plata rapparans Kendricks Lamar, To Pimp a Butterfly var gefin út viku fyrir áætlaðan útgáfudag.





Upphaflega átti platan að koma út tuttugasta og þriðja þessa mánaðar en hún var gefin út á Spotify og iTunes snemma að morgni mánudags. Lamar sendi frá sér röð torræðra tísta á samskiptamiðlinum Twitter á sunnudag áður en hann að lokum tísti tengli þar sem hægt var að hala plötunni niður.

Þetta er þriðja plata rapparans en meðal gesta á To Pimp a Butterfly eru Snoop Dog, George Clinton og Ronald Isley. Platan Good Kid, M.A.A.D. city sem kom út árið 2012 og náði töluverðum vinsældum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.