Lífið

Líkir Bieber við Joffrey konung

Samúel Karl Ólason skrifar
Undiir lok kvöldsins bað Justin Bieber aðdáendur sína afsökunar á hegðun sinni síðustu misseri.
Undiir lok kvöldsins bað Justin Bieber aðdáendur sína afsökunar á hegðun sinni síðustu misseri. Vísir/AP
Comedy Central hefur nú birt tvö myndbönd úr grillun Justin Bieber, þar sem grínistar og aðrir þekktir einstaklingar tóku tónlistarmanninn fyrir. Grillunin var tekin upp um helgina, en verður birt þann 30. mars.

Kevin Hart stýrði kvöldinu en hann opnaði á því að segja að þeir ætluðu að gera það sem foreldrar Bieber, eða yfirvöld, hefðu átt að gera fyrir löngu síðan. Það væri að rassskella hann, eins og hann ætti skilið.

Grínistinn Jeffrey Ross sagði Bieber vera hrokafullan og sagði hann vera Joffrey konung poppsins. Joffrey er eins og margir vita ungur konungur úr Game of Thrones, sem þekktur er fyrir grimmd sína og hroka. Hann er án efa einn hataðasti karakter sjónvarpssögunnar.

Því hefur verið haldið fram að Bieber hafi fengið rækilega á baukinn í grilluninni. Á vef Rolling Stone, segir hins vegar að greinilega hafi henni verið ætlað að bæta orðspor tónlistarmannsins, sem hefur lent í ýmsum vandræðum síðustu misseri.

Hér fyrir neðan má síðan sjá umræðuna á Twitter sem fer fram undir merkinu #bieberroast.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.