Lífið

Söfnuðu tæpri hálfri milljón

Freyr Bjarnason skrifar
DJ Víkingur og félagi hans Nökkvi Fjalar söfnuðu um 450 þúsund krónum til góðgerðarmála í desember. Hér eru þeir með söfnunarbaukinn.
DJ Víkingur og félagi hans Nökkvi Fjalar söfnuðu um 450 þúsund krónum til góðgerðarmála í desember. Hér eru þeir með söfnunarbaukinn. Fréttablaðið/Valli
Plötusnúðurinn Víkingur Heiðar Arnórsson og félagi hans Nökkvi Fjalar Orrason söfnuðu um 450 þúsund krónum, eða tæpri hálfri milljón, til Mæðrastyrksnefndar með því að gefa vinnu sína fyrir að troða upp í desembermánuði.

„Þetta er mikill tekjumissir fyrir okkur en samt alveg þess virði út af málstaðnum. Þrátt fyrir þennan tekjumissi er hann bara dropi í hafið miðað við hversu margir eiga ekki fyrir jólasteikinni og pökkunum fyrir jólin,“ segir Víkingur, betur þekktur sem DJ Víkingur.

Alls sneri DJ Víkingur skífum sex kvöld í desember, eða fjórum sinnum á skemmtistaðnum Austur, einu sinni á Akranesi og einu sinni á Selfossi. Einnig gaf hann vinnu sína þegar hann aðstoðaði þýska tónlistarmanninn Claptone er hann spilaði í Hafnarhúsinu 12. desember.

Samtals söfnuðust um 300 þúsund krónur á giggunum, auk þess sem Coca Cola lét hundrað þúsund krónur af hendi rakna til þessa góða málefnis. Söfnunarbaukur var sömuleiðis látinn ganga á stöðunum og söfnuðust í hann um 50 þúsund krónur.

Strákarnir settu einnig í gang uppboð á DJ-síðu Víkings á Facebook þar sem fólk gat boðið í þá til að fá þá til að skemmta. Það gekk þó ekki sem skyldi. „Menn eru óvanir þessu. Það hefði verið fínt ef það hefði gengið því þá hefði maður getað safnað meiru. Þetta snýst allt um upphæðina,“ segir Víkingur, sem fékk hugmyndina að söfnuninni ásamt besta vini sínum, Brynjari Valdimarssyni, eins og áður hefur komið fram. Hann féll skyndilega frá í byrjun desember og var söfnunin tileinkuð honum.

„Hann var þvílíkt ánægður með þessa hugmynd. Hann hugsaði vel um vini sína og hugsaði fallega til fólks. Hann hefði verið ánægður með hvernig söfnunin gekk.“

Þó svo að desembermánuður sé liðinn getur fólk enn tekið þátt í söfnuninni og lagt inn á reikninginn 0130-05-064872 og kt: 190385-2999.

Aðspurður segist Víkingur stefna á að gera söfnunina að árlegum viðburði. „Ég er að spá í að gera þetta á hverju ári, taka allan desember í þetta og byrja að auglýsa fyrr. Mér er sama þótt ég sé að spila á hverjum einasta degi í desember, til dæmis í fatabúðum á daginn, svo lengi sem það kemur fín upphæð út úr því. Gaman væri að enda árið á stóru áramótagóðgerðarballi,“ segir Víkingur, sem var skemmtanastjóri á Broadway í fimm ár og hefur því góða reynslu af áramótaböllum þaðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×