Lífið

Blake Lively orðin móðir

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Lively og Reynolds hafa verið gift frá árinu 2012.
Lively og Reynolds hafa verið gift frá árinu 2012. Nordicphotos/Getty
Leikkonan Blake Lively og eiginmaður hennar, Ryan Reynolds, eignuðust sitt fyrsta barn á milli jóla og nýárs.

Barnið fæddist í New York og kom nokkru fyrr en áætlað var, en móður og barni er sagt heilsast vel. Ekki hefur verið tilkynnt hvort um stúlku eða dreng var að ræða.

Hjónin eru sögð hafa áform um að ala barnið upp fjarri ys og þys Hollywood og veita því sem eðlilegasta barnæsku þrátt fyrir að vera sjálf áberandi í sviðsljósinu.

Lively og Reynolds kynntust við tökur á myndinni Green Lantern árið 2010 og gengu í það heilaga tveimur árum síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×