Lífið

Laumaði sér inn á rauða dregilinn, inn á sýninguna og í Spectre-eftirpartýið - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
James Ware er James Bond
James Ware er James Bond vísir
Englendingurinn James Ware laumaði sér inn á frumsýninguna á nýjustu James-Bond myndinni Spectre á dögunum en um var að ræða galasýninguna í Royal Albert Hall í London.

Hann falsaði miðann, skellti sér í smóking-jakkaföt og fór af stað með símann, þar sem hann tók þetta allt saman upp á myndband.

Kappinn náði meðal annars að hitta Sam Smith, Chris Evans og Naomi Harris á rauða dreglinum og sá einnig Harry og William Bretaprinsa sem voru þar ásamt Kate Middleton. Daniel Craig var vissulega einnig mættur á svæðið.

Eftir sýninguna náði James einnig að koma sér í eftirpartýið en hér að neðan má sjá þetta skemmtilega ferðalag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.