Innlent

Fyrsta skóflustungan að sjúkrahóteli

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Kristján Þór tók fyrstu skóflustunguna. Með honum voru fyrrverandi heilbrigðisráðherrar og fleiri.
Kristján Þór tók fyrstu skóflustunguna. Með honum voru fyrrverandi heilbrigðisráðherrar og fleiri. vísir/gva
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra skrifaði í dag undir samning um byggingu sjúkrahótels. Samningurinn er á milli Nýs Landspítala ohf. og LNS Saga ehf sem var lægstbjóðandi í verkið í útboði sem fram fór í september.

Fyrstu skóflustunguna tók Kristján Þór, en með honum voru meðal annars fyrrverandi heilbrigðisráðherrar auk starfsmanna Landspítala, annarra velunnara hans og áhugafólks um uppbyggingu þjóðarsjúkrahússins við Hringbraut.

Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi ráðherra, var á meðal þeirra sem vottuðu samninginn.vísir/gva
„Þetta er ánægjulegur dagur sem markar ákveðin tímamót. Nýtt sjúkrahótel mun bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra strax og það er risið. Mestu skiptir þó sú staðreynd að með þessum fyrsta áfanga eru verklegar framkvæmdir við uppbyggingu þjóðarsjúkrahúss hafnar," segir Kristján Þór í tilkynningu.

Framkvæmdirnar munu hefjast fljótlega. Í fyrstu er um að ræða gerð bráðabirgðabílastæða á svæðinu sunnan við aðalbyggingu Landspítala sem koma í stað annarra stæða sem verður lokað tímabundið þegar framkvæmdir hefjast við byggingu sjúkrahótelsins. Verklok eru áætluð um miðjan desember.

Ingibjörg Pálmadóttir og Svavar Gestsson.vísir/gva
Sjúkrahótelið er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Nýs Landspítala við Hringbraut. Það mun rísa á norðurhluta lóðar spítalans milli kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs og verður tekið í notkun árið 2017. Sjötíu og fimm herbergi verða í sjúkrahótelinu.

„Dagurinn í dag markar upphaf uppbyggingar nýs Landspítala. Mikilvægum áföngum er náð; bæði með byggingu sjúkrahótelsins og með vinnu við fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans sem verður hjartað í starfsemi nýs spítala. Við sjáum því árangur þrotlausrar vinnu síðustu ára og getum farið að horfa til framtíðar. Nýtt og betra þjóðarsjúkrahús er hagsmuna- öryggismál okkar allra,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, í tilkynningunni.

Siv Friðleifsdóttir og Svavar Gestsson. Á myndinni má einnig sjá Ingibjörgu Pálmadóttur, Guðmund Árna Stefánsson og Guðlaug Þór Þórðarson.vísir/gva
Dagur B. Eggertsson og Páll Matthíasson. Á myndinni má einnig sjá Birgi Jakobsson landlækni, Leif Bárðarson hjá landlæknisembættinu og ráðherrana fyrrverandi Jón Kristjánsson, Ingibjörgu Pálmadóttur og Svavar Gestsson.vísir/gva
Samninginn undirrituðu Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Ásgeir Loftsson frá LNS Saga.vísir/gva
Sjúkrahótelið verður fjórar hæðir og kjallari. Byggingin er 4.258 fermetrar að stærð (brúttó). Samningsfjárhæð er um 1,9 milljarðar króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×