Lífið

Kings of Leon vilja koffeinlaust Diet Dr. Pepper og súkkilaðihúðuð goji-ber

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Kings of Leon á sviði í Sydney.
Kings of Leon á sviði í Sydney. vísir/getty
Hljómsveitin Kings of Leon, sem treður upp hér á landi í ágúst, sendir allajafnan ítarlega lista á tónleikahaldara með ýmsum kröfum. Á svokölluðum „ræder“, sem sveitin hefur sent á tónleikahaldara á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu og Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að ætlast sé til þess að gnótt drykkja og matfanga standi meðlimum Kings of Leon og starfsmönnum til boða. Hver og einn meðlimur sveitarinnar þarf sinn eigin kæli með sérstökum drykkjartegundum og klökum innan í. Misjafnt er hvað meðlimirnir vilja drekka meðan á tónleikum stendur. Sumir vilja orkudrykki en aðrir svalandi íþróttadrykki

Standlampar og sófasett

Eins og vaninn er, þegar svona þekktar hljómsveitir ferðast, eru strangar kröfur gerðar um aðbúnað í búningsherbergjum. Sveitin fer fram á fimm mismunandi búningsherbergi og í hverju þeirra á að vera sófasett og er sérstaklega tekið fram að sófarnir eigi að vera í stíl. Einnig er farið fram á tvo borðlampa í hverju herbergi auk standlampa. Meðlimir gera kröfu um sjónvarp í hverju herbergi, nokkur sófaborð og vilja hafa teppi á gólfinu.

Ítarlegar kröfur um máltíðir

Sveitin, sem er á tónleikaferðalagi um Evrópu, er með fjölmarga starfsmenn í kringum sig. Á Evróputúr sveitarinnar hafa verið allt að fimmtíu manns í teyminu í kringum hana. Gerð er krafa um að kokkur eldi sérstaklega fyrir hópinn á þeim stað sem hópurinn er á hverju sinni.

Ætlast er til þess að meðlimir og fylgilið Kings of Leon geti valið úr ýmsu, hvort sem það er í morgunmat, hádegismat eða kvöldmat. Á ferðalagi sínu hefur sveitin farið fram á að maturinn sé ekki eldaður annars staðar og komið með hann í hitabökkum. „Slíkt er hvorki hollt né heillandi,“ segir í orðsendingu sem tónleikahaldarar á Evróputúrnum hafa hingað til fengið.

Nákvæmur listi

Ísleifur Þórhallsson, tónleikahaldari hjá Senu sem flytur sveitina inn, neitar að tjá sig um kröfur sveitarinnar. En sé listinn af því sem meðlimir sveitarinnar vilja fá hér á landi jafn ítarlegur og annars staðar er ljóst að flytja þarf nokkrar sælgætis- og drykkjartegundir sérstaklega inn fyrir tónleikana. Meðal annars er farið fram á sérstaka tegund af kókosvatni, túnfisksalat, heimalagað íste (ekki of sætt), ferskan hummus og Diet Dr. Pepper, bæði með og án koffeins. Sveitin leggur einnig fram sérstakan lista af víntegundum fyrir tónleikahaldara. Sveitin nefnir átta tegundir af hvítvíni og níu tegundir af rauðvíni.

Mikið umfang

Fregnir hafa borist af því að tveir trukkar komi hingað til lands með búnað sem nota á fyrir tónleikana. Trukkarnir koma hingað til lands með Norrænu og munu sjást á þjóðvegum landsins þegar þeir keyra til Laugardalshallar frá Seyðisfirði. Samkvæmt heimildum blaðsins verða þeir fullir af hljóðfærum og aukaljósabúnaði og viðbót við hljóðkerfið sem á að skila sér í mikilli upplifun áhorfenda. Kings of Leon er ein þekktasta rokksveit heims og er hún þekkt fyrir líflega sviðsframkomu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.