Lífið

Gleðitárin flæddu þegar faðir brúðarinnar náði í stjúpföðurinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mögnuð saga sem hefur snert marga.
Mögnuð saga sem hefur snert marga. vísir
Þegar Todd Cendrosky horfði á stjúpdóttur sína ganga upp að altarinu báru tilfinningarnar hann ofurliði og áttaði hann sig á því hversu erfitt væri að standa á hliðarlínunni.

Stjúpdóttir hans, Brittany Peck, var þennan dag að gifta sig. Allt í einu fann hann einhvern grípa í hönd hans og draga hann að sér. Það var Todd Bachman, líffræðilegur faðir Peck, sem sagði við Cendrosky; „Þú hefur komið að uppeldinu alveg jafn mikið og ég, þú verður að aðstoða mig að ganga með dóttir okkar.“

Þessi saga hefur birst víða í erlendum miðlum og þykir hún einstaklega falleg. Viðbrögð Cendrosky hafa nú farið um netheima eins og eldur um sinu en hann gjörsamlega brotnaði niður.

Delia Blackburn, ljósmyndari, deildi myndunum á Facebook-síðu sinni og hafa þær nú farið um allan heim.

Pabbarnir gengu því með dóttur sína upp að altarinu. Viðbrögð gestanna voru einnig ótrúleg og grét hver einasti.

Bachman hafði raun planað þetta og sagði við ljósmyndarann rétt áður en hann gekk af stað; „Vertu tilbúin, ég ætla gera dálítið sérstakt.“

Grab tissues... because you will need it as you look through these pictures. Todd Bachman, father of the bride, brought...

Posted by Delia D Blackburn Photography on 27. september 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×