Lífið

Færði dóttur sinni fyrsta hormónaskammtinn fyrir kynleiðréttinguna

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Corey átti erfitt með að halda aftur af sér.
Corey átti erfitt með að halda aftur af sér. myndir/youtube
Erica Maison kom dóttur sinni á óvart á dögunum. Corey, dóttir Ericu, hafði í hálft þriðja ár beðið eftir því að fara í hormónameðferð til að hefja kynleiðréttingarferli sitt en móðir hennar gaf henni fyrsta skammtinn fyrir skemmstu.

Corey beið eftir skjölum frá sálfræðingnum sínum þess efnis að hún mætti hefja estrógen meðferðina. Dag einn þegar hún kom heim úr skólanum kom móðir hennar henni á óvart þar sem hún hafði ekki hugmynd um að hún mætti loksins hefja ferlið.

Erica sótti lyfin meðan Corey var í skólanum, faldi það heima hjá þeim og tók síðan upp þegar hún opnaði gjöfina. Erica tók atburðinn upp á myndband og setti á vefinn en það sýnir glöggt hve ótrúlega ánægð dóttir hennar var með lyfin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×