Þurfa að bæta við sig 300 hluthöfum Sæunn Gísladóttir skrifar 30. september 2015 11:09 Þann 15. október næstkomandi verður Síminn hringdur inn á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Til að fá skráningu á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þarf Síminn að uppfylla það skilyrði að það séu að lágmarki 500 hluthafar. Í dag eru hluthafarnir 208 og því þarf þeim að fjölga um tæplega 300 fyrir 7. október næstkomandi. Þetta kom fram á kynningarfundi vegna hlutafjárútboðs Símans sem fór fram í höfuðstöðvum Arion banka í morgun. Þann 15. október næstkomandi verður Síminn hringdur inn á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Eftir helgi hefst almennt úboð á hlutabréfum í Símanum og mun fara fram 5.-7. október næstkomandi. Arion banki býður 18-21 prósent hlut í félaginu til sölu í útboðinu, en Arion banki er sem stendur stærsti hluthafi Símans og á 27,8% hlut. Stærð hlutans á útboðinu nemur að lágmarki 4,7 milljörðum króna ef miðað er við lágmarksgengið. Í almenna útboðinu geta fjárfestar valið um að skrá sig fyrir kaupum í tilboðsbók A að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 2,7-3,1 króna á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs. Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónum króna. Þar verður lágmarksverð 2,7 krónur á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint af seljanda en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi í tilboðsbók A.
Mest lesið Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Sjá meira