Lífið

Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt ekki að setja hendur og lappir útum gluggann - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nokkuð sérstakt atvik
Nokkuð sérstakt atvik vísir
Það kannast margir við það þegar foreldrar þínir bönnuðu þér að setja hendurnar eða fæturna útum gluggann í bíl á ferð.

Einn mótorhjólagarpur vildi sýna fram á það að þetta sé í raun hættulegt og lítið megi út af bregða svo að illa fari.

Hann kom auga á barn sem var með lappirnar út úr bíl á ferð. Hann ók alveg að bílnum og greip örlítið í lappirnar. Viðbrögðin voru eðlilega þau að barnið dró strax lappirnar aftur inn í bílinn.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×