Lífið

Velti sleðanum og fór úr axlarlið

Í ferðaþáttunum Illa farnir ferðast hinir viðkunnanlegu félagar Davíð Arnar, Arnar Þór og Brynjólfur um Ísland í sextán þáttum með það að markmiði að kynnast landinu og lenda í ævintýrum.



Þeir hafa verið að kanna Norðurland á síðustu vikum og eru nú staddir á Sauðárkróki.

Þeir skella sér á vélsleða og halda upp á fjöll. Það reyndar gengur ekki betur en svo að Davíð veltir sínum sleða og fer úr axlarlið. Það fer allt vel og bæði Davíð og sleðinn sleppa óskaddaðir.



Þetta er sjöundi þáttur af Illa farnir. Alls verða þættirnir sextán talsins, fjórir frá hverjum landshluta.


Tengdar fréttir

Fundu falda gleðibumbu

Þrír félagar ferðast um Ísland með það að markmiði að kynnast landinu og lenda í ævintýrum.

Syndir norðursins

Strákarnir í Illa farnir eru mættir til Akureyrar en þeir taka Norðurlandið fyrir í næstu þáttum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.