Seinheppinn húnn át yfir sig og festist í glugganum 18. október 2015 20:07
Er þetta hinn raunverulegi Bangsímon? Það er spurningin sem hefur brunnið á fjölmörgum netverjum eftir að margir af stærstu fréttamiðlum heims birtu myndband af seinheppnum rússneskum birni í dag. Í myndbandinu, sem fengið er af vefsíðu Daily Mail og sjá má hér að neðan, ber að líta raunir húnsins sem hafði klöngrast inn um eldhúsglugga í borginni Kamhatcka í austurhluta Rússlands. Þegar hann varð húsráðenda var reyndi hann að flýja af hólmi en átti í stökustu vandræðum með að komast út um fyrrnefndan glugga – að öllum líkindum vegna ofáts. Þórðargleðin var allsráðandi hjá íbúum hússins sem fönguðu svaðilfarirnar á snjallsímana sína og heyra má hlátur þeirra í bakgrunni. „ Ýtum rassinum, ýtum rassinum!“ segir einn áhorfenda og hlær við. Eftir um mínútulöng átök tókst birninum loks að skríða út. Þrátt fyrir að áhorfendum hafi verið skemmt lítur rússneska lögreglan málið nokkuð alvarlegum augum. „Þau höfðu engan rétt á að nálgast dýrið. Jafnvel litlir birnir geta verið hættulegir þegar þrengt er að þeim og þeir eru hræddir,“ sagði talsmaður lögreglunnar.
Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Lífið Með húsaflutninga á heilanum Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Sjá meira