Heilsa

Matarklám

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Matarklám er ekki klám í sinni hefðbundnustu mynd tengt við blæti eða beina kynferðislega örvun heldur er meira verið að fagna sykri, fitu og annarri mögulegri óhollustu setta fram á girnilegan og sleförvandi hátt.

Nánast allt er komið með -klám endingu en hún er oft farin að standa fyrir urmul af einhverju eða þá eitthvað syndsamlega yfirdrifið.

Kræsingatímaritið Bon Appetite tók saman á myndrænan hátt góð dæmi um matarklám birtist í samfélagsmiðlum.

Vísir/Skjáskot
Svo er hægt að líta t.d. á auglýsingar frá dýraverndunarsamtökunum PETA sem ákveðna útgáfu af matarklámi.

Vísir/Skjáskot
Eitt tímarit tók þessa pæling ögn lengra og í raun fór með hana allan hringinn með því að blanda saman nektarmyndum af körlum og svo matvöru.

Útkoman er vissulega öðruvísi og minnir jafnvel á unglingsmyndina American Pie þar sem matvöru var beitt á klámfenginn og kynferðislegan hátt.

Reyndar hafa bíómyndir gjarnan gert út á að nota mat sem kynferðislega skírskotun

Vísir/Skjáskot
Þetta kann að vera æsandi  fyrir suma

Vísir/Skjáskot
Skemmtileg notkun á húmor bætir vissulega tímaritið






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.