Heilsa

Einn sá ferskasti

Rikka skrifar
visir/sigurjónragnar
Félagarnir Jón Gunnar og Jón Arnar gáfu nýverið út bókina Djúsbók Lemon en í henni er að finna tugi uppskrifta af ýmiskonar girnilegum söfum úr safni þeirra félaga.

Safarnir bera allir hin skemmtilegustu nöfn eins og Babe safinn sem uppskriftin er af hér fyrir neðan.

Babe

3 epli

þumalfingurstór biti af engifer

1 bolli frosið mangó

1/2 ástaraldin

Eplin og engiferið eru pressuð og safinn settur í blandara ásamt mangóinu og innmatnum úr ástaraldinum. Blandað saman í um 20 sekúndur.


Tengdar fréttir

Fallegur morgunsafi

Hollur og hreinsandi safi sem er einnig einstaklega bragðgóður.

Búðu til þinn eigin íþróttadrykk

Flestir íþrótta- sem og orkudrykkir eru stútfullir af sykri og litarefnum. Af hverju ekki að prófa að búa til þinn eigin drykk sem kemur að sömu notum.

Töfrandi hressingadrykkur

Þessi töfrandi hressingardrykkur er fullkomið millimál eða hressing hvenær sem er.








×