Tónlist

Kaleo tekur upp tónlist í London

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Kaleo vinnur með þekktum upptökustjóra í London.
Hljómsveitin Kaleo vinnur með þekktum upptökustjóra í London. Mynd/Baldvin Vernharðsson
Hljómsveitin Kaleo er þessa dagana stödd í hljóðveri í London, þar sem hún er í upptökum.

Sveitin vinnur þar með breska upptökustjóranum Mike Crossey. „Við erum að prófa að vinna með Crossey og sjáum svo hvað kemur út úr því. Þetta er mikill fagmaður og við hlökkum til samstarfsins,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari og gítarleikari Kaleo.

Crossey hefur unnið með hljómsveitum á borð við Arctic Monkeys, Keane, The Kooks og Razorlight, svo nokkrar séu nefndar.

Kaleo verður í London í nokkrar vikur í upptökum en fer svo vestur um haf, nánar tiltekið til Austin í Texas. „Við spilum á tónleikum í Austin um miðjan febrúar eða seinni hluta febrúar. Við verðum með eins konar búsetu í Austin en verðum líka mikið á ferðinni á næstunni, geri ég ráð fyrir,“ útskýrir Jökull.

Sveitin mun líklega koma fram á fleiri tónleikum í Bandaríkjunum í kjölfarið.

Kaleo skrifaði undir plötusamning við Atlantic Records fyrir skömmu og verður tónlist hljómsveitarinnar gefin út á heimsvísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.