Í dag var tilkynnt hvaða tólf lög hafa verið valin í undankeppni Eurovision 2015 hér á landi.
Nöfn þeirra höfunda og flytjenda sem keppa til sigurs voru opinberuð á blaðamannafundi í Útvarpshúsinu. Þátttakendur voru viðstaddir fundinn.
Tvær undankeppnir fara fram í beinni útsendingu frá Háskólabíói laugardagana 31. janúar og 7. febrúar. Sex lög keppa hvort kvöld.
Úrslitin fara síðan fram laugardaginn 14. febrúar, einnig í beinni útsendingu frá Háskólabíói.
Vinningslagið verður framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Vín í Austurríki dagana 19., 21. og 23. maí 2015.
Alls bárust 258 lög í keppnina. Lögin sem valin voru til keppninnar í ár eru afar fjölbreytt í tónlistarstíl. Höfundar og flytjendur eru sumir hverjir margreyndir en aðrir hafa ekki áður komið við sögu Söngvakeppninnar. Yngsti höfundurinn er aðeins 16 ára.
Kynnar keppninnar í ár eru þær Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Guðrún Dís Emilsdóttir og Salka Sól Eyfeld.
Söngvakeppnin 2015
Lögin, höfundar og flytjendur:
1. Aldrei of seint
Lag: María Björk Sverrisdóttir, Marcus Frenell og Sarah Reede
Texti: María Björk Sverrisdóttir og Regína Ósk Óskarsdóttir
Flytjandi: Regína Ósk
2. Ást eitt augnablik
Lag og texti: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Flytjandi: Stefanía Svavarsdóttir
Stefanía tók þátt í keppninni 2013 þar sem hún söng lagið „Til þín“ ásamt Jógvan Hansen.
3. Brotið gler
Lag og texti: Axel Árnason og Bjarni Lárus Hall
Flytjandi: Bjarni Lárus Hall
Bjarni Lárus er söngvarinn í Jeff Who, en hann er að taka þátt í fyrsta sinn.
4. Fjaðrir
Lag og texti: Hildur Kristín Stefánsdóttir og Guðfinnur Sveinsson
Flytjandi: SUNDAY (Hildur Kristín Stefánsdóttir, Guðfinnur Sveinsson, Vignir Rafn Hilmarsson og Helga Kristín Ingólfsdóttir)
Hildur Kristín er söngkona í hljómsveitinni Rökkurró og er að keppa í Söngvakeppninni í fyrsta sinn. Er þó vön að syngja út um allan heim, söng meðal annars íslenska þjóðsönginn í Japan.
5. Fyrir alla
Lag: Daníel Óliver Sveinsson og Jimmy Åkerfors
Texti: Daníel Óliver Sveinsson og Einar Ágúst Víðisson
Flytjandi: CADEM (Daníel Óliver ásamt Emelie Schytz og Caroline Waldemarsson)
Daníel Óliver býr í Svíþjóð og er á samningi hjá Viktoria Ekeberg (https://victoriaekeberg.com/)
Hann kemur fram með tveim sænskum söngkonum og dönsurum,
6. Í kvöld
Lag og texti: Elín Sif Halldórsdóttir
Flytjandi: Elín Sif Halldórsdóttir
Elín Sif er á fyrsta ári í MH og er að stíga sín fyrstu skref í tónsmíðum. Hún hefur tekið þátt í nokkrum höfundakeppnum og sigraði keppnina núna í haust í MH.
7. Í síðasta skipti
Lag: Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson og, Sæþór Kristjánsson
Texti: Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson og Friðrik Dór Jónsson
Flytjandi: Friðrik Dór
Strákarnir í Stop Wait Go tóku þátt í fyrra með lagið „Dönsum burtu blús“, en núna eru þeir með tvö lög í keppninni. Friðrik Dór ætti að vera öllum kunnur, þó svo að þetta sé í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í Söngvakeppninni.
8. Lítil skref
Lag og texti: Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson
Flytjandi: María Ólafsdóttir
María hefur unnið þó nokkuð með Stop Wait Go, en einnig tekið þátt í fjölmörgum söngleikjum þegar hún var í Versló og í söngskemmtunum.
9. Milljón augnablik
Lagi: Karl Olgeir Olgeirsson
Texti: Karl Olgeir Olgeirsson og Haukur Heiðar Hauksson
Flytjandi: Haukur Heiðar Hauksson
Karl Olgeirsson hefur tekið þátt nokkrum sinnum áður, en átti lagið „lífið kviknar á ný“ sem lenti í öðru sæti í fyrra. Núna hefur hann fengið til liðs við sig engan annan en Hauk Heiðar Hauksson, söngvarann í Diktu, en þetta verður í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í Söngvakeppninni.
10. Myrkrið hljótt
Lag: Arnar Ástráðsson
Texti: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Flytjandi: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Bæði Arnar og Erna Hrönn hafa tekið þátt áður, bæði saman og í sitthvoru lagi. Þetta er þó í fyrsta sinn sem Erna Hrönn tekur þátt sem höfundur.
11. Piltur og stúlka
Lag og texti: Björn Þór Sigbjörnsson, Tómas Hermannsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson
Flytjendur: Björn og félagar (Björn Jörundur Friðbjörnsson, Unnur Birna Björnsdóttir, Hafrún Kolbeinsdóttir og Pétur Örn Guðmundsson.
Björn Jörundur er flestum kunnur, en er þó að keppa í fyrsta sinn í Söngvakeppninni.
12. Þú leitar líka að mér
Lag: Ásta Björg Björgvinsdóttir
Texti: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Flytjandi: HINEMOA (Ásta Björg Björgvinsdóttir, Rakel Pálsdóttir, Sindri Magnússon, Kristófer Nökkvi Sigurðarson, Gísli Páll Karlsson og Regína Lilja Magnúsdóttir)
Höfundarnir áttu lagið „Eftir eitt lag“ sem Greta Mjöll flutti í keppninni í fyrra.
Lífið