Einar: Ekki eins gaman ef þetta verður algjört rugl Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. apríl 2015 06:00 Einar Jónsson er í atvinnuleit eftir að hafa staðið sig frábærlega með lið Molde í Noregi. vísir/daníel „
Ég er að klára samninginn minn hér og ég veit ekkert hvað tekur svo við. Það er þó alveg ljóst að ég er hættur hjá Molde,“ segir Einar Jónsson en framtíð hans er í óvissu eftir að hann sagði upp samningi sínum hjá Molde. Einar gerði sér lítið fyrir og kom Molde upp um tvær deildar á tveimur árum og liðið er því komið í úrvalsdeildina. Einar kaus aftur á móti að segja upp samningi sínum við félagið og hefur ekki gengið að fá nýjan samning. Tíma hans hjá félaginu er því lokið. „Það hefur í raun ekkert gerst. Það hafa verið smá þreifingar en ekkert sem ég get sætt mig við. Þær forsendur sem ég gaf mér til að vera áfram eru ekki til staðar. Því hef ég tekið ákvörðun um að finna mér eitthvað annað að gera.“ Það er ýmislegt í óvissu hjá félaginu hvað varðar framhaldið og það hefur ekki hjálpað til. „Þeir hafa lýst yfir vilja til að halda mér en þegar kemur að því að ræða samningamál verður lítið úr þeim viðræðum. Það virðist hvorki vera nægur vilji né fjárhagsleg geta til þess að taka næsta skref. Ég tel mig ekki með óraunhæfar launakröfur. Það er ný stjórn að taka við og hún er að taka sér fulllangan tíma til þess að setja sig inn í hlutina.“ Þjálfarinn er með samning við Molde út maí en hvað tekur við þá er óráðið. „Það eru einhverjar fyrirspurnir og þreifingar en ekkert alvarlegt. Það er áhugi hjá mér að vera áfram úti en ég þarf ekkert að vera í útlöndum bara til að vera í útlöndum. Það þarf að vera eitthvað áhugavert. Sama með Ísland. Ef það er áhugavert starf í boði þar sem hentar mér og fjölskyldu minni vel þá er það eitthvað sem ég myndi skoða,“ segir Einar, en er ekki svekkjandi að ævintýrinu sé lokið þegar hann er loks kominn með liðið upp í úrvalsdeild? „Það átti enginn von á þessu. Félagið var ekki undirbúið undir þetta. Þetta er búið að vera gaman og að hafa náð þessum árangri. Ég geng stoltur frá borði. Auðvitað hefði verið gaman að halda áfram með verkefnið en að sama skapi ekki eins gaman ef þetta væri algert rugl og við ekki með lið sem ætti möguleika í deildinni.“
Handbolti Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Arsenal - Crystal Palace | Síðasta lausa sætið í undanúrslitum Enski boltinn Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Kansas frá Kansas til Kansas Sport Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Fleiri fréttir Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Sjá meira