Lífið

Bilaður Bond

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Daniel Craig
Daniel Craig Vísir/Getty
Svo virðist vera að jafnvel sjálfur James Bond þurfi að leggjast undir hnífinn.

Daniel Craig, sem fer nú með hlutverk einkaspæjarans góðkunna í fjórða sinn, þurfti á hnéaðgerð að halda eftir að hafa slasað sig við tökur á myndinni Spectre.

Samkvæmt talsmanni myndarinnar hafði þetta þó ekki áhrif á tökur myndarinnar en leikarinn fór í aðgerðina í skipulögðu tökuhléi.

Craig er harður í horn að taka, rúmir tveir mánuðir eru síðan hann slasaðist á hné við tökur í Pinewood Studios í London.

Spectre kemur í kvikmyndahús þann 23. október í Bretlandi en áætluð frumsýning á Íslandi er 6. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.