Það er hátt til lofts á heimilinu enda er íbúðin á efstu hæð fjölbýlishúss. Eldhúsið og stofan eru samtengd og rúmgott rými þar sem stórir eldhúsgluggarnir vísa í átt að Esjunni.
Sautján pottaplöntur dreifa úr sér í íbúðinni enda hefur Gunni gaman af plöntum en segist einu sinni hafa verið mikill plöntubani. Það hefur þó greinilega breyst til hins betra því plönturnar eru allar við hestaheilsu.

Tónlist ómar úr plötuspilara um íbúðina þegar hann tekur til við að sýna okkur nokkrar af uppáhaldshlutunum sínum.
Stórir gluggarnir hleypa birtu inn í rúmgott eldhúsið. Við eldhúsvaskinn er útsýni yfir Esjuna og á eldhúsbekknum standa nokkrar af fjölmörgum plöntum heimilisins.
Eldhúsið
Eldhúsið er uppáhaldsstaður Gunna. „Það er svo gaman að elda og svo er svo gott útsýni,“ segir hann og bætir við:
„Það er æðislegt að koma fram á morgnana og sjá Esjuna.“

Plöntuna fékk Gunni frá vini sínum og þá var hún talsvert minni í sniðum.
„Svo allt í einu þremur árum seinna óx upp sproti og það kom rautt blóm. Þegar það opnaði sig fékk ég símtal frá honum og þá hafði hann eignast barn. Alveg klikkað.“
Logsuðutækið
Logsuðutækið keypti hann fyrir rúmu hálfu ári og notar það talsvert.
„Þetta er mjög sniðugt, ég held að það höfði svolítið til mín með matargerðina hvað það er mikið af trikkum. Hvernig er best að gera eitt eða annað,“ segir hann brosandi.

Gunni á mikið af alls kyns eldhústækjum og tólum enda hefur hann gaman af því að elda og í eldhúsinu er góður hnífur nauðsynlegur.
„Ég trúi ekki á að maður þurfi að eiga sjö hnífa eða eitthvað. Einn góðan stóran og einn góðan lítinn. Og búið.“

Listaverk eftir myndlistarkonuna Söru Riel er eitt af því sem er í uppáhaldi.
„Þetta er mynd sem Sara Riel málaði fyrir síðustu útgáfu hjá hljómsveitinni Múm og gaf mér síðan í jólagjöf. Ég er mjög þakklátur fyrir það,“ segir Gunni.
Myndin prýðir plötuna Smilewound sem kom út árið 2013.

Gunni stefnir á að sá fyrir kryddjurtum og hengja þær upp í stóra gluggann en birtan skapar kjörskilyrði til ræktunar.