Lífið

Heppinn með samstarfsfólk

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Sigurður Yngvi ákvað að synda á móti straumnum og flytja heim til Íslands til að sinna rannsóknum.
Sigurður Yngvi ákvað að synda á móti straumnum og flytja heim til Íslands til að sinna rannsóknum. Vísir/Vilhelm
?Aðalstarf mitt er við rannsóknir og við höfum birt fjölda vísindagreina í virtum ritrýndum tímaritum. Þetta hefur vakið athygli og ég hef ferðast víða til að segja frá rannsóknunum. Ég hef líka verið heppinn með samstarfsfólkið, það er eintómir snillingar,? segir Sigurður Yngvi Kristinsson spurður um tilefni verðlauna sem honum hlotnuðust nýlega.

Hann er yngsti prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands og í hlutastarfi á Landspítalanum.

Hann kveðst hafa lagt áherslu á að rannsaka sjúklinga með beinmergskrabbamein sem kallast mergæxli, horfur þeirra, fylgikvilla og ættlægni sjúkdómsins, auk áhættuþátta.

Sigurður Yngvi flutti frá Svíþjóð 2012, eftir sérnám og störf við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Skyldi hann hafa sleppt góðri stöðu þar til að koma heim?

?Ég hefði getað verið áfram í ágætri stöðu á Karólínska en okkur í fjölskyldunni langaði að flytja heim.

Auðvitað var líka lúxus fyrir mig að fá þessa stöðu sem ég er í og að geta einbeitt mér að rannsóknum, það er ekki sjálfgefið á þessu landi.

Konan mín er nýrnalæknir og við eigum þrjú börn, sjö, fjórtán og sextán ára. Það voru ekki síst börnin sem komu mér heim.?

Eflaust muna margir eftir Sigurði Yngva úr danskeppnum fyrri ára og jafnvel úr sjónvarpinu þegar hann dansaði í íslensku Eurovision-keppninni með Önnu Mjöll.

?Ég er ekki það ungur enn að ég sé að dansa eða keppa,? segir hann þegar þetta er rifjað upp. ?En auðvitað dansa ég þegar ég er að skemmta mér.?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×