Lífið

Sagnfræðingur safnar þöggunarsögum

Guðrún Ansnes skrifar
Sigríður hefur opnað síðuna konurtala.wordpress.is þar sem hún safnar saman sögunum áður en þær fara á safnið.
Sigríður hefur opnað síðuna konurtala.wordpress.is þar sem hún safnar saman sögunum áður en þær fara á safnið. Vísir/GVA
„Þessi hugmynd spratt eiginlega upp um leið og sögurnar fóru að flæða inn á Beauty tips,“ segir Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur, sem nú hefur farið af stað með söfnun frásagna þeirra kvenna sem hafa stigið upp undir formerkjunum #þöggun og #konurtala.

Hefur framtakið farið eins og stormsveipur um samfélagsmiðlana undanfarið og ratað í erlenda fjölmiðla. „Þetta er svo ofboðslega stórt og mikið allt saman, og eitthvað sem fræðimenn framtíðarinnar koma til með að vilja skoða og rannsaka,“ segir Sigríður, en hún er þess fullviss að hér hafi átt sér stað sögulegur atburður.

„Sögurnar eru ekki aðgengilegar til lengri tíma inni á Beauty tips-síðunni svo ég vildi setja þetta saman á einn stað og halda þannig til haga, svo hægt sé að gera almennilega grein fyrir því sem er að eiga sér stað núna,“ útskýrir Sigríður og bætir við að lítið mál hafi verið að telja yfirmenn sína á Landsbókasafninu á að geyma þessar frásagnir.

Ekki er skilyrði að hafa sagt sína sögu á umræddum hópi, heldur tekur hún við öllum þeim sögum sem þurfa að komast fram í dagsljósið, og hefur hún fengið sögur sem ekki hafa birst á netinu. „Sumar hverjar vilja ekki setja sögurnar sínar inn í hópinn, svo þarna opnast fyrir nýja gátt, jafnvel fyrir eldri konur en þær sem eru á Beauty tips,“ segir Sigríður og bætir við að sögur karla eigi líka fullt erindi í söfnunina, þó að þær hafi kannski ekki verið fyrirferðarmiklar í umræðunni.



Eftir að söfnun sagnanna lýkur mun Sigríður koma þeim fyrir á skjalasafninu og getur fólk ráðið hvort þeirra frásögn verði læst eða ekki, en þá er hægt að fara fram á læsingu í allt að áttatíu ár eftir að viðkomandi deyr. „Þetta snýst nefnilega aðallega um að koma þessum sögum frá sér og að geta safnað þeim upp á sögulegt samhengi. Þetta er komið of langt til að gleymast.“


Tengdar fréttir

Þurfum að einblína á gerendur ofbeldis

Aðsókn hjá Stígamótum hefur aukist eftir byltingu um uppljóstrun kynferðisbrotamála á samfélagsmiðlum. Algengt er að aðsóknin aukist í kjölfar mikillar fjölmiðlaumræðu. Lögreglufulltrúi segir að enn sé of mikið um þöggun.

Raddir þessara kvenna þurfa að heyrast

Unnur Ösp og Nína Dögg skrifuðu handrit að dramatískum spennuþáttum sem innblásnir eru af sjö ára rannsóknarvinnu þeirra í Kvennafangelsinu í Kópavogi.

Unnið gegn ofbeldi

Brýnt er að vinna gegn ofbeldi í íslensku samfélagi. Innan stjórnsýslunnar höfum við innanríkisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra tekið höndum saman um að vinna gegn ofbeldi og niðurbrjótandi áhrifum þess






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.