Lífið

Veðurbreytingavélin sannar sig enn á ný

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Talið er að veðurbreytingavélin eigi stóran þátt í því frábæra veðri sem var á Secret Solstice hátíðinni um helgina.
Talið er að veðurbreytingavélin eigi stóran þátt í því frábæra veðri sem var á Secret Solstice hátíðinni um helgina.
Annað árið í röð komu hingað til lands breskir menn með sérsmíðaðan búnað sem þeir segja vera þeim eiginleikum gæddur að ná að halda þurru veðri. Búnaðurinn er eins konar veðurbreytingavél og er ætlað að halda himninum heiðum tímabundið.

Tækjabúnaðurinn mun hafa verið gagngert fluttur hingað til lands annað árið í röð til þess að tryggja að veðrið á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum yrði gott og þurrt en það hefur tekist í bæði skiptin.

Virkni tækisins er þannig að því er ætlað að ýta tímabundið lægðarmörkum frá jörðu með tilteknum tíðnisviðum sem draga úr líkum á úrkomu og minnka skýjabakka í grennd við tækið.


Hluti af hinni svokölluðu veðurbreytingavél náðist á mynd um helgina.
Jakob Frímann Magnússon, einn skipuleggjenda Secret Solstice-hátíðarinnar, er talinn eiga veg og vanda að heimsókn tækisins og Bretanna.

Aðspurður kaus hann að tjá sig ekki um málið og hinn dularfulla tækjabúnað en lýsti þó yfir mikilli ánægju með veður hátíðarinnar og hátíðina í heild sinni. „Við erum afskaplega ánægð með hátíðina og þá veðurguði sem tryggðu okkur samfellda birtu og hamingju alla helgina,“ segir Jakob Frímann.

Meðfylgjandi ljósmynd náðist inn um glugga á Þróttaraheimilinu um helgina, af því sem talið er vera hluti af umræddum búnaði.


Tengdar fréttir

Vísindamenn fluttir inn til að laga veðrið

Sérstakt veðurbreytingatæki var flutt til landsins til þess að sjá til þess að gott veður yrði á tónlistarhátíðinni Secret Solstice samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.