Lífið

Stígur á svið með Snoop Dogg

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Unnur Eggertsdóttir er hér ásamt dansfélögum sínum. Hluti þeirra kemur fram með henni ásamt Snoop Dogg.
Unnur Eggertsdóttir er hér ásamt dansfélögum sínum. Hluti þeirra kemur fram með henni ásamt Snoop Dogg. Mynd/Novus
„Ég er að fara að sjá um danshlutann af Snoop Dogg-tónleikunum. Hann er vanur að vera með einhverjar píur uppi á sviði sem eru að dansa en frá því sem ég hef séð þá eru þetta ekkert mikið fyrirfram ákveðnar rútínur. Mig langar að breyta því,“ segir dansarinn og söngkonan Unnur Eggertsdóttir.

Aðstandendur Snoopadelic-partísins með Snoop Dogg, sem fram fer í Laugardalshöllinni þann 16. júlí, höfðu samband við Unni og fengu hana til þess að setja saman „dans-show“ við nokkur lög sem rapparinn ætlar að flytja.

„Ég verð með fjórar aðrar stelpur með mér, við höfum allar starfað sem danskennarar og unnið mikið saman. Tvær af þeim voru með mér í Eurovisio-atriðinu mínu 2013 og svo voru þær líka í myndbandinu mínu við lagið Við stingum af,“ útskýrir Unnur.

Unnur Eggertsdóttir ætlar allavega að reyna ná „selfí“ með rapparanum.vísir/Valli
Hún er spennt fyrir verkefninu, enda mikill aðdáandi rapparans. „Ég er gríðarlega spennt. Markmiðið er náttúrulega að hann verði svo sáttur við okkur að hann taki okkur með sér restina af túrnum,“ segir Unnur létt í lundu.

Snoop Dogg ætlar að stýra tæplega þriggja klukkustunda partíi í Höllinni og þeytir skífum en ætlar þó líka að rappa. „Hann ætlar allavega að rappa einhver fjögur lög sem við erum með fasta rútinu við. Það verður gaman að stíga á svið með kappanum.“

Rapparinn er vanur að hafa frekar fáklædda dansara með sér á sviðinu, ætlið þið þá að vera fáklæddar? „Það er auðvitað bara val hverrar konu hvernig hún klæðir sig. Við verðum samt meira klæddar en er kannski venjan á svona „showum“, bara því okkur finnst þægilegra að dansa þannig,“ segir Unnur. 

Stúlkurnar hlakka mikið til að hitta kappann. „Við verðum eitthvað baksviðs með kauða, ég þarf allavega að ná einni selfí með honum,“ bætir Unnur við og hlær. 

Rapparinn er vanur að hafa frekar fáklædda dansara með sér á sviðinu, ætlið þið þá að vera fáklæddar? „Það er auðvitað bara val hverrar konu hvernig hún klæðir sig. Við verðum samt meira klæddar en er kannski venjan á svona „showum“, bara því okkur finnst þægilegra að dansa þannig,“ segir Unnur.Nordicphotos/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×