Lífið

Kylie Jenner orðin 18 ára

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Tyga dekraði svo sannarlega við Kylie í tilefni afmælisins.
Tyga dekraði svo sannarlega við Kylie í tilefni afmælisins.
Kylie Jenner varð 18 ára gömul í gær en hún hélt heljarinnar veislu um helgina í tilefni þess.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kylie náð langt í lífinu og hefur nú þegar sent frá sér nokkrar fatalínur og skrifað bók. Hún er fyrirmynd margra ungra stúlkna í tísku og förðun.

Hún er á föstu með rapparanum Tyga en hann gaf henni 40 milljóna króna Ferrari-sportbíl.

Öll fjölskyldan var mætt í afmælið, þar á meðal Kanye West og Kim Kardashian.

Það vakti athygli að Kris og Caitlyn Jenner mættu saman en það sýnir hversu stuðningsrík Kris er orðin eftir erfiða mánuði í kjölfar skilnaðarins. Afmælið var haldið á veitingastaðnum The Nice Guy sem er einn sá vinsælasti í Los Angeles.

Kylie var með tvo kjóla til skiptanna í veislunni eins og sannri afmælisprinsessu ber.


Tengdar fréttir

Systraþema hjá Balmain

Tískuhúsið fékk Jenner, Hadid og Smalls systurnar til liðs við sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×