Lífið

Fimm mánaða barn reynir að ýlfra hærra en hundur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það er náttúrulega spurning hvort barnið haldi að það sé hundur.
Það er náttúrulega spurning hvort barnið haldi að það sé hundur.
Þegar þú ert með tvo hunda á heimilinu þá kemur fyrir að þeir fara að metast um það hvor getur framkallað meiri hávaða. Þessu hefur Larry Woods lent í ítrekað en nú er komið svo að fimm mánaða sonur hans reynir að spangóla hærra en hundarnir.

Líkt og skáldið sagði þá var „árangurinn ennþá fremur agnarsmár“ en það er aldrei að vita nema drengurinn nái hundunum einn daginn.

Myndband af þessu krúttlega atviki má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×