Lífið

Jenner systur hanna fyrir Topshop

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Systurnar Kendall og Kylie Jenner
Systurnar Kendall og Kylie Jenner Vísir/Getty
Systurnar Kendall og Kylie Jenner hafa tilkynnt að þær muni hanna nýja fatalínu fyrir tískukeðjuna Topshop. Línan er væntanleg í verslanir Topshop í sumar. 

Þær segja línuna endurspegla lífsstílinn þeirra í Los Angeles og sé mjög nútímaleg.

Systurnar hafa haft nóg að gera upp á síðkastið. Kylie er með stóran samning við hárlengingarfyrirtæki og Kendall er orðin ein af vinsælustu fyrirsætum heims, bæði á tískupöllunum og í tímaritum, auk þess sem hún er nýtt andlit fyrir snyrtivörurisann Estée Lauder.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×