Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling – Fiskur: Veiðiuggarnir þínir eru glansandi!

Elsku dásamlegi fiskurinn minn. Þú átt aldeilis eftir að finna fyrir því hvað þú getur verið skemmtilega þrjóskur í þessum mánuði. Það á nefnilega eftir að redda málum sem þú varst í þann mund að gefa eftir.

Sumir verða svakalega fúlir yfir því að geta ekki stjórnað þér en þú átt að einbeita þér að því að sýna að þú sért pollrólegur sama hversu viðkvæmur og tilfinningaríkur þú kannt að vera innra með þér.

Þú byggir upp svo mikinn kraft með því að vera eins mikið heima hjá þér og þú getur því heimilið þitt er aðalorkuuppsprettan þín. Það eru töfrar í því.

Þú ert að vaxa svo mikið á öllum sviðum og þú þarft ró til að allt gangi upp.

Í kringum miðjan nóvember ertu búinn að fá svo margt upp í hendurnar að þú hreinlega verður að fagna. Þarna eru geislar þínir svo miklir og það er eins og þér hafi hreinlega verið stungið í samband!

Það er ótrúlega þreytandi persóna eitthvað að gelta í kringum þig. Hættu að hanga með pirrandi fólkinu.

Vertu góður og ljúfur í ástamálunum, veiðiuggarnir þínir eru eitthvað svo glansandi fallegir þennan mánuðinn.

Mottó: Lífið er yndislegt                                                

Frægir fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Diana Omel listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.