Lífið

Lygilegt myndband frá Harlem Globetrotters: Þurfti aðeins sjö tilraunir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnað myndband.
Magnað myndband. vísir
Körfuboltaliðið Harlem Globetrotters er heimsfrægt og hefur liðið til að mynda komið nokkrum sinnum til Íslands og þá hafa leikmenn liðsins sýnt listir sínar.

Í tilefni af 90 ára afmæli liðsins gerði það sérstakt kynningarmyndband sem er með hreinum ólíkindum.

Um er að ræða eitt samfleytt atriði sem myndar einskonar tónlistarmyndband. Takturinn kemur frá fjölda körfuboltum og þurfti aðeins sjö tilraunir til að skjóta myndbandið.

Hér að neðan má sjá þetta magnaða myndband. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×