Lífið

Fimm sturlaðar staðreyndir um Tom Cruise sem koma fram í bók Remini

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leah Remini og Tom Cruise.
Leah Remini og Tom Cruise. vísir/getty
Leikkonan Leah Remini fer ófögrum orðum um Vísindakirkjuna í nýrri bók, Troublemaker: Surviving Hollywood and Scientology, sem kemur bráðlega út. Remini hefur farið mikinn í viðtölum vestanhafs en þessi leikkona sló fyrst í gegn þegar hún lék aðalhlutverkið í þáttunum King of Queens.

Í bókinn gagnrýnir hún kirkjuna í heild sinni og meðal annars stórleikarann Tom Cruise sem er einskonar andlit kirkjunnar.

Sjá einnig: Vísindakirkjan sektuð fyrir svik

Hún segir meðal annars frá því þegar Suri Cruise, dóttir Tom og Katie Holmes, var skilinn eftir hágrátandi inni á baðherbergi í brúðkaupi þeirra hjóna. Þá, aðeins eins árs gömul. Tom Crusie og Katie Holmes eru í dag skilin.

Sjá einnig: Travolta sagður ekki þora úr Vísindakirkjunni af ótta við upplýsingaleka

Miðillinn the Independent hefur nú tekið saman fimm skrítnustu atriðin sem leikkonan hefur að segja um stórleikarann Tom Cruise.

1. Cruise á að hafa beðið gesti á hans heimili, og þar á meðal Will Smith og Jada Pinkett Smith, að fara í feluleik við sig.

2. Remini segir að Cruise hafi gjörsamlega misst vitið við aðstoðarkonu sína þegar hún fann ekki kaffibolla sem var beint fyrir framan hana.

3. Cruise á að hafa tekið lagið You've Lost That Lovin' Feelin' með Righteous Brothers  í brúðkaupi hans og Katie Holmes í Róm. Í myndinni Top Gun frá árinu 1986 fór Tom Cruise með aðalhlutverkið. Þar tók hann einmitt lagið eftirminnilega. 



4. Að hennar sögn hafði Vísindakirkjan ekki áhyggjur af stór sófa atvikinu þegar Cruise var gestur í þætti Oprah á sínum tíma. 

5. Nicole Kidman, fyrrverandi eiginkona Cruise, var sögn vera „suppressive person” innan Vísindakirkjunnar en það er sérstaklega slæmt hugtak innan kirkjunnar. Fólk innan safnaðarins sagði hana hafa reynt að kúga annað fólk og vera erfiða í mannlegum samskiptum. Hún varð að yfirgefa Vísindakirkjuna og þau skildu í kjölfarið. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×