Bílar

Háfættur og duglegur Volvo V60 Cross Country

Finnur Thorlacius skrifar
Volvo V60 Cross Country kostar frá 6.190.000 kr.
Volvo V60 Cross Country kostar frá 6.190.000 kr.
Reynsluakstur - Volvo V60 Cross Country

Sú aðferð að hækka bíla á fjöðrunum, stækka stuðarana og bæta við hlífðarplötum hér og þar til að gera bílinn kraftalegri og líklegri til átaka er ekki ýkja flókin aðgerð, en þetta er einmitt aðferðin sem beitt var við fyrstu Subaru Outback og Audi Allroad bílana og það svínvirkaði. Af hverju ætti það ekki líka að virka fyrir Volvo? Reyndar gerði Volvo þetta fyrst árið 1997 með V70 langbakinn og kallaði bílinn þá Volvo V70 Cross Country.

Þessum V60 Cross Country skal þó ekki rugla saman við aðra XC-bíla Volvo, en þeir eru líkari jepplingum eða jeppum nútímans á meðan þessi bíll er enn nær fólksbílum þrátt fyrir aukna veghæð. Volvo V60 Cross Country er með 6,5 cm meiri veghæð en hefðbundinn V60 og einnig má fá þann bíl með fjórhjóladrifi, líkt og V60 Cross Country. Hann fæst þó einnig framhjóladrifinn og þannig var reynsluakstursbíllinn. V60 Cross Country kemur hinsvegar á 18 eða 19 tommu felgum með stærri dekk til að þola meiri torfærur auk þess að vera með brekkuaðstoð og leiðsögukerfi sem staðalbúnað. Aðrar minniháttar útlitsbreytingar fylgja einnig.

Stóð sig vel í talsverðri ófærð

Þegar Volvo V60 Cross Country var reyndur fyrir stuttu fékk hann bæði að kynnast malbikinu vel en einnig afar slæmum vegi á leið í hjólatúr yfir Svínaskarð milli Skálafells og Móskarðshnjúka. Fyrir það fyrsta reyndist ekki mikið mál að koma hjólinu inn í bílinn án þess að taka hjól af því, en til þess þarf að fella aftursætin. Vegurinn þangað var hinn mesti hroði en það verður ekki sagt annað en þessi bíll hafi staðist prófið þar sem hann fór fimlega yfir mýmarga og djúpa drullupollana sem á vegi hans urðu sem og afar grófan veg í öllum skilningi.

Þessi bíll var hinn besti ferðafélagi og átti greinilega meira inni ef færðin hefði versnað enn meir. Veghæðin leyfði það aka nokkuð djarflega og fjöðrun hans var til fyrirmyndar. Það vakti eftirtekt hvað hann var hljóðlátur og ekkert heyrðist í undirvagni bílsins, en slíka kröfu er óhætt að gera þegar lúxusbíll er annarsvegar, en allir bílar Volvo falla í þann flokk. Aðeins var vart við undirstýringu þegar mikið er á hann lagt en hann bætir það eiginleg upp með annarri lipurð og það er ekki frá því að akstur þessa netta bíls sé ánægjulegri en stærri bræðra hans úr Volvo fjölskyldunni.

Spræk en þyrst dísilvél

Aflleysi hrjáir ekki bílinn með D4 dísilvélinni, en hún reyndist aðeins of þyrst. Aldrei sást minni meðaleyðsla en ríflega 11 lítrar þrátt fyrir að um týpískan blandaðan akstur á þjóðvegum og í þéttbýli væri að ræða. Akstur á malbiki var afar ljúfur og gaman að taka á bílnum í kröppum beygjum þar sem hann hallar sér sáralítið í þær og er eins og góður fólksbíll hvað það varðar. Svo sem ekki skrítið í ljósi þess að bíllinn er hækkaður fólksbíll. D4 dísilvélin er nægilega öflug fyrir þennan bíl þó gaman væri að hafa hann með 240 hestafla T5 bensínvélinni eins og bíllinn er helst seldur vestanhafs.

Vélin er 2,0 lítra með forþjöppu og skilar 190 hestöflum og afar góðu 400 Nm togi. Vélinni tengist svo 8 gíra sjálfskipting sem gerði sitt og vel það. Uppgefin eyðsla bílsins er 4,6 lítrar en það var reynsluaksturmanni hulin ráðgáta hvernig hún ætti að nást í ljósi þess að bíllinn fór aldrei fyrir neðan 11 lítra í þeim blandaða akstri sem ekkinn var. Þessar tölur eru kannski ein birtingarmynd þeirrar gagnrýni sem allir bílaframleiðendur hafa fengið undnafarið, að miklu muni á uppgefinni eyðslu og rauneyðslu.

Fæst frá 6.190.000 kr.

Framsætin í bílnum eru ferlega góð og öll sætin falleg. Fóta- og höfuðrými afturí er fínt og einfalt og fljótlegt að fella þau niður. Farangursrými er þokkalegt, en hafa verður í huga að þarna fer hækkaður fólksbíll, en ekki risastór jeppi sem taka á hálfa búslóð. Innréttingin í þessum bíl er eins og almennt má segja um Volvo bíla flott og snyrtileg og sem fyrr naumhyggjuleg, einföld og gáfulega uppsett. Þar hefur Volvo sérstöðu og takkaflóðið er ekki beint að þvælast fyrir.

Svo er alltaf gott til þess að vita að öryggismálin eru alveg til fyrirmyndar í Volvo bílum, enda leiðandi bílaframleiðandi þar á ferð. Volvo V60 má fá frá 6.190.000 krónum en fyrir fjórhjóladrifsútgáfuna þarf að leggja um 700.000 kr. við, en þá kemur hann með 2,4 lítra dísilvél með meira togi þó hestaflatalan sé sú sama.

Kostir: Aksturseiginleikar, torfærugeta, hljóðlátur

Ókostir: Eyðsla, engar bensínvélar



2,0 l. dísilvél, 190 hestöfl

Framhjóladrif

Eyðsla: 4,6 l./100 km í bl. akstri

Mengun: 120 g/km CO2

Hröðun: 7,6 sek.

Hámarkshraði: 220 km/klst

Verð frá: 6.190.000 kr.

Umboð: Brimborg

Látlaus innrétting og naumhyggjuleg sem ávallt í Volvo.
Ekki takkaflóðinu fyrir að fara.
Mjög góð framsæti eru í bílnum.





×