Veiði

Frábær feðgaferð í Miðfjarðará

Karl Lúðvíksson skrifar
Marínó Guðmundsson með 79 sm grálúsugan lax úr Miðfjarðará
Marínó Guðmundsson með 79 sm grálúsugan lax úr Miðfjarðará
Það er búin að vera hörkuveiði í Miðfjarðará í sumar þrátt fyrir að hún hafi verið heldur sein í gang eins og margar árnar á norðurlandi.

Áin kom feykilega sterk inn um miðjan júlí og hefur verið algjör veisla á bökkunum þar síðan og algengt er að heyra af mönnum sem ná 20-30 löxum á stöngina í tvo daga og sumir ná meiru en það. Marínó Guðmundsson var við veiðar nýlega í ánni og gerði góða veiði með sínum veiðifélögum en samtals lönduðu þeir 82 löxum á tvær stangir í tvo daga. Hann sendi okkur smá línu um ferðina.

"Við feðgarnir, pabbi, Halli bróðir og Breki sonur minn áttum frábæran túr í Miðfjörðin. Vorum allir að fara í fyrsta skipti og ákváðum því að fá gæd sem reyndist vera hinn geðþekki Alejandro frá Argentinu - sá er á sínu 10 ári þarna! Topp maður Í stuttu máli er feikna mikið af fisk í ánni og nýr fiskur enn að ganga. Við fundum fisk í nánast öllum stöðum sem við reyndum. Allt tekið á smáflugur, hitch og litlan sunray. Ég og sonur minn Breki áttum frábæran morgun í Austuránni, byrjuðum í Myrkhyl og löbbuðum upp í Kambfoss. Lönduðum 12 löxum á leiðinni við frábærar aðstæður. Ógleymanleg veiðiferð í alla staði".

Það er nóg eftir af tímabilinu ennþá sem á eftir að lyfta veiðitölunum upp enn frekar og miðað við magn af fiski í ánni segja þeir sem þekkja hana vel að hún eigi auðveldlega að ná 4000 löxum á þessu tímabili.



 





×