Lífið

Sex ára stelpa biður foreldra sína um að vera vini - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tiana.
Tiana. vísir
Sex ára kanadísk stelpa að nafni Tiana biður mömmu sína og pabba að vera vinir í hjartnæmu myndbandi sem gengur nú eins og eldur um sinu á veraldarvefnum.

Foreldrarnir eru nokkuð nýlega skilin og má greina á myndbandinu að skilnaður hafi ekki gengið sem skildi.

Á myndbandinu talar Tiana við móður sína og segir meðal annars: „Mamma, ertu tilbúin að vera vinkona hans? Ekki vera svona hávær við hvort annað, ég vil frekar að þið talið rólega við hvort annað. Reyndu þitt besta.“

Myndbandið er stórkostlegt og má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×