Lífið

Sumarlífið: Úlfur Úlfur með svakalegt útgáfupartý

Stefán Árni Pálsson skrifar
Davíð Arnar Oddgeirsson og Ósk Gunnarsdóttir voru mætt með Sumarlífið í útgáfupartý á Loft Hostel. Úlfur Úlfur gaf út plötuna Tvær Plánetur í gær og einnig var myndband við lagið Brennum allt frumsýnt.

Sjá einnig: Úlfur Úlfur með nýtt myndband: Með slefandi St. Bernard hunda yfir sér

Arnar Freyr Frostason myndar sveitina ásamt Helga Sæmundi Guðmundssyni. Þeir gefa plötuna út sjálfir en Record Records sér um dreifingu og kom hún í verslanir í dag.

Mætingin var fín og voru rappararnir Bent, Steindi og Gísli Pálmi mættir á svæðið. Myndbandið er leikstýrt af Magnúsi Leifssyni. Seinast þegar þeir félagar unnu með Magnúsi þá var það myndband við lagið Tarantúlur og það vann til verðlauna í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.