Lífið

Homer og Marge skilja

Á meðan allt lék í lyndi.
Á meðan allt lék í lyndi.
Aðdáendur The Simpsons eru margir hverjir gríðarlega áhyggjufullir, en svo virðist sem Homer og Marge bindi enda á tuttugu og sjö ára hjónaband sitt í næstu seríu þáttanna. Lét Al Jean, einn framleiðenda þáttanna, hafa þetta eftir sér í viðtali á dögunum.

Jafnframt sagði hann að Homer yrði ekki lengi einsamall, því hann myndi fljótlega verða bálskotinn í lyfjafræðingi nokkrum, en Lena Dunham, aðalnúmerið í Girls-þáttunum, mun ljá henni rödd sína. 

Jean vildi þó ekki segja hvort skilnaður Marge og Homers væri kominn til að vera. Serían fer í loftið vestanhafs í september á þessu ári.


Tengdar fréttir

Eðlisfræði læknar ástarsorg

Í hvaða heimi það telst íslenskum almenningi til hagsbóta að svo gott sem gefa auðlindir landsins útvöldum er erfitt að segja. Líklega engum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.