2.700 Volkswagen og 1.500 Renault bílar ónýtir í Tianjin Finnur Thorlacius skrifar 17. ágúst 2015 12:32
Fjöldi þeirra bíla sem eyðilögðust í sprengingunni í kínversku hafnarborginni Tianjin virðist talsvert meiri en fyrstu tölur bentu til. Renault hefur tilkynnt um nærri 1.500 bíla sem þar skemmdust og svo virðist sem 2.700 Volkswagen bílar hafi eyðilagst, en ekki 2.000 eins og fyrst var greint frá. Flestir bílaframleiðendur sem flutt hafa bíla sína til hafnarborgarinnar Tianjin hafa nú skipt um umskipunarhöfn og t.d. hefur BMW skipt yfir til Shanghai og verða þeir 2.000 bílar BMW sem fyrirtækið flytur vikulega til Kína sendir þangað. BMW hefur ekki enn látið uppi hve mikið af bílum þeirra eyðilagðist í sprengingunni og er það vegna þess að í þriggja km radíus frá sprengingunni hefur sprengjusvæðinu verið lokað og því hefur ekki verið hægt að meta tjónið. Stærsta verksmiðja Toyota í Kína var einmitt í Tianjin og hefur henni nú verið lokað. Í henni eru framleiddir 440.000 bílar á ári, eða um helmingur þeirra bíla sem Toyota framleiðir á ári í landinu. Því mun þessi lokun hafa mikil áhrif á sölu Toyota bíla í Kína á þessu ári. Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá hversu öflug sprengingin í Tianjin var.
Mest lesið Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Eiturlyf og vopn fundust á heimili hins handtekna á Bakkafirði Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Hjónin létust eftir langvarandi veikindi Innlent Gripnir á leið upp í flugvél en tugmilljóna þýfi ófundið Innlent