Lífið

Misheppnað körfuboltaskot kom í bakið á honum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt myndband.
Skemmtilegt myndband. vísir
Í dag er orðið mjög vinsælt að reyna koma fram með það sem kallast „viral“ myndband og leitar fólk oft á tíðum til hugmyndaraflsins.

Það gerði einn drengur á Twitter. Hann kastar körfubolta í áttina að körfunni og snýr sér strax við til að horfa í myndavélina. Drengurinn virðist nokkuð stoltur af skotinu en það fer ekki betur en svo að boltann fer í spjaldið, skoppar til baka og beint í andlitið á þessum meistara.

Myndbandið er vissulega orðið „viral“ en kannski ekki á þeim forsendum sem þessi ungi maður hafði gert ráð fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×