Körfubolti

TNT minnist Craig Sager með hjartnæmu myndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt myndband.
Fallegt myndband.
Íþróttafréttamaðurinn skrautlegi og skemmtilegi, Craig Sager, lést á fimmtudaginn 65 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.

Sager hefur undanfarin 20 ár tekið viðtöl á hliðarlínunni í NBA og hefur notað mikillar virðingar bæði þjálfara og leikmanna. Hann var einn allra vinsælasti íþróttafréttamaður sögunnar og starfaði lengst af á sjónvarpsstöðinni TNT.

Stöðin minnist Sager með einstaklega fallegu myndband á Facebook en fréttamaðurinn var þekktur fyrir skrautlegan klæðnað og skemmtilegar spurningar.

Barátta Sager við krabbameinið síðustu mánuði hefur verið mikið í fjölmiðlum en með baráttuna að vopni tókst Sager nokkrum sinnum að hægja á meininu og snúa aftur í vinnuna.

Hér að neðan má sjá þetta fallega myndband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×