Breski fatarisinn ASOS óskaði eftir því að Birkir yrði næsta fyrirsæta þeirra á Twitter í gærkvöldi á meðan á leiknum stóð. Birkir þáði boðið góðfúslega eftir leikinn. Það verður spennandi að sjá hvort að það verði eitthvað úr því samstarfi en Birkir mundi eflaust plumma sig vel í því hlutverki.
Það er þó ekki aðeins ASOS sem hefur áhuga á Birki en breski miðillinn Daily Mail birti heila grein tileinkaða honum. Þar líkja þau honum við þrumugoðið Þór og ungan Brad Pitt.
Á Twitter hafa notendur verið að missa sig yfir Birki og útlitinu hans eins og má sjá neðar í fréttinni. Þar er honum meðal annars líkt við NFL stjörnuna og eiginmann ofurfyrirsætunnar Gisele Bundchen, Tom Brady
Það verður gaman að fylgjast með hvert Birkir stefnir eftir Evrópumótið. Hvort að hann næli sér í fyrirsætusamning og verði næsti David Beckham verður að koma í ljós. Við erum allavega á Birkisvagninum svo það sé fært til bókar.

Birkir Bjarnason is bae
— Lois Reed (@LowzReed) June 28, 2016
Hey @bbjarnason8, when you're done with #Euros2016 give us a call... we could use you on the ASOS catwalk #ENGICE pic.twitter.com/Rbgn2gZn1b
— ASOS (@ASOS) June 27, 2016
Iceland has Thor (@bbjarnason8 ), of course they were going to win
— Beatriz (@invinciblepyt) June 27, 2016
1 of these guys has 4 Super Bowls and the guy not named Tom Brady just beat England @bbjarnason8 #MiracleOnIceland pic.twitter.com/BIKkzX5f1H
— Angela Lento (@collegeinsider) June 27, 2016
I think we can all agree the real winner here is Birkir Bjarnason's beautiful face.
— Charlotte L. Riley (@lottelydia) June 27, 2016